Myndin var tekin sl. laugardag í blíðskaparveðri hér í Würzburg. Rauði hringurinn sýnir hvar við búum í fínu þakíbúðinni okkar. Die Alte Brücke leiðir okkur beint í menninguna í miðbænum, getur varla verið betra! Takið eftir hve margir kirkjuturnar skaga upp úr borginni, hér eru 85 kirkjur sem þjóna 100 þúsund Pylsuborgurum.
Svo um kvöldið var prófessorinn sóttur heim þar sem í boði var ostafondú og fyrsta flokks Julíusar-hvítvín. Ég býð spennt eftir að bjóða spekingunum í harðfiskinn, brennivínið og hangikétið frá Íslandinu Góða.
3 comments:
Þetta lítur aldeilis spennandi út, ég fer bara að hlakka til ferðarinnar. Fæ ég ekki örugglega Júlíusar-hvítvín? Ein þyrst eftir Joga.
Júlíus bíður þín...við svíkjumst ekki undan slíkri beiðni.
Mikið er þetta fallegt. Þýskaland er yndislegt land.
Post a Comment