Feb 26, 2008

Að ferðast um Ísland í útlöndum

Það er magnað að geta skoðað landið úr flugi á vefnum. Í gær var ég að skoða gönguleið nokkra sem ég fór um daginn í Henglinum. Þetta var helgina sem ein mesta lægð gekk yfir landið, og fóru vindhviðurnar yfir 30 m/s á því svæði sem við vorum á göngu og gistum í tjöldum. Annars staðar um landið voru hviðurnar mun skarpari.
Myndin, fengin að láni frá Google, sýnir hvar við gengum frá virkjanasvæðinu (því sem mótmælendur höfðu lítinn sem engann áhuga á að mótmæla, þrátt fyrir að mengun frá svæðinu sé mun áhrifameiri fyrir íbúða höfðuborgarsvæðisins heldur en því sem fyrir austan er sökkt) í átt að Skeggja. Þaðan var ferðinni heitið í Dyradal þar sem leiðangurinn átti að enda. Minn hópur var ekki betri í rötun en það að við enduðum á Nesjavöllum!


No comments: