- hitta fjölskyldu og vini
- borða fullt fullt af ferskum og góðum fiski
- sjá leiksýninguna Kommúnuna
- vera í henglum á Henglinum
- komast í snertingu við náttúruöflin, og fá hviðuna í kviðinn
Fékk að láni mynd hjá Danna félaga mínum úr HSSR sem sýnir soldið stemmarann austarlega í Skeggja, ég er þarna lengst til vinstri.

Nú er bara að koma sér í Þýskalandsgírinn að nýju. Ég kom út með brot af Íslandi í fararteskinu, má þar nefna: hangikét frá Kalla á Galtastöðum (hver fúlsar svosem við því), Ástu-brauð fyrir BO, lakkrís, hraunbita, súkkulaðirúsínur, lýsi, harðfisk, Mugison plötu, Fóstbræður, .. nú og Eimskipa-dagatal 2008. Allt verður þetta á boðstólum fyrir kollega BO í íslensku partýi sem haldið verður fyrr en mig og þig grunar.
Ég var samferða Bogomil í flugi í gær og vatt mér upp að honum til að fá að vita hva hann væri að vilja hér í landi. Hann kvaðst eiga að spila í Belgíu, já sagði ég, fannst þér þá sniðugt að fljúga til Frankfurtar? Hann varð torkennilegur á svip, og sagðist ekki vita mikið um væntanlegt ferðalag sitt, hefði bara mætt eins og honum hafi verið sagt að gera. Prúðmenni! En nú hef ég komist að því að Pétur Ben er með hellings haug af tónleikum hér í landi, en allir eru þeir í 300 km radíus frá okkur. Svekk svekk, tökum hann bara heima í staðinn.
No comments:
Post a Comment