Feb 8, 2008

Ólafía hvar er Vigga???

Jú, í Þýska sjónvarpinu. Í gær þegar ég átti að fara að sofa tók ég eftir kunnulegu andliti á sjónvarpsskjánum. Var þar komin sjálf frú Vigdís Finnbogadóttir. Þar talaði hún um að Íslendingar hefðu orðið og væri það okkar stærsta auðlind. Allir íslenskir seðlar eru með bókhneigðu fólki. Nú hefur aldeilis tíðin breyst, ætli seðlar framtíðarinnar verði með flugvélum og fríblöðum?

Í þættinum var einnig rætt við Halldór Laxness, þar sem hann sveiflaði sverum vindli og ræddi málin á háþýsku. Þá kom Ragnar Kjartansson við sögu ásamt G. Halldórsdóttur.

Ég er alveg hættur að vera hissa þegar ég sé íslenskt efni í sjónvarpinu hérna úti. Ég hef t.d séð Mýrina, Nóa albínóa, heimildarþátt um e-n afdalabónda auk þess sem nokkrar bílaauglýsingar eru teknar upp á Íslandi. Þar að auki sá ég Steinunni Jakobsdóttur og Sverrir Hilmarsson jöklarannsóknafólk bregða fyrir í fræðsluþætti um Suðurskautslandið.

Páli Magnússyni finnst merkilegt að sýna EINA íslenska mynd í mánuði í Ríkissjónvarpinu.

Kommon......

3 comments:

Anonymous said...

Já, og svo sá ég ákaflega vel gerðan fræðsluþátt um aðveitugöngin frá Kárahnjúkum.

Tóta said...

Og voru myndirnar ekki allar talsettar á þýsku!?! Ég sá einu sinni Engla alheimsins á þýsku í Berlín - stórmerkilegt!

Anonymous said...

Jú að sjálfsögðu er þetta allt á tungumáli föðursins. Þá bendi ég á færslu mína hér að neðan þar sem Nói albínói biður um weissbier en fær maltöl.