Nov 27, 2007

Ný vika, nýjir tímar



Nú hefst enn ein vinnuvikan. Við tókum daginn snemma (8:00) því Katrín þurfti að hringja til Kína. Ég skellti í tvær samlokur og við örkuðum af stað á labbið. Jólaþorpið stækkar með hverjum deginum og spenningurinn í maganum vex jafn hratt.

Um helgina var farið í verslunaraleiðangu og ég eignaðis bol, skyrtu, buxur, peysu og skó. Katrín fékk eyrnaband!!
Bernd bauð okkur í áramótamat og lýsti í smáatriðum hvað hann ætlar að elda og hvernig við munum arka misdrukkin upp á hæð eða niður á brú til þess að fylgjast með flugeldasýnigu næturinnar.

2 comments:

Lína og Alex: said...

Við þurfum að fara að hætta að borða Cheerios í morgunmat hérna í Kanada og taka samlokurnar ykkar til fyrirmyndar - Usss maður bara slefar ! Eflaust nauðsynlegt að borða vel áður en maður leggur í símtal til Kína. Skál/Lína & Alex

KA said...

Það er satt. Hann BO er alveg snillingur í að gera góðar lokur.
Annars erum við búin að ákveða að vera hér úti um jólin, komumst vonandi á skíði milli hátíða og væri gaman að hitta ykkur, svo verða áramótin hjá Herrn Professor Dr. Bernt.
Skál í botn!