Sendingum frá DHL hefur fjölgað og ferillin hjá þeim er orðinn meira straumlínulaga. Í morgun kom prófessorinn til okkar og spurði hvaða starfsemi við værum eiginlega með? Í gær kom kassi sem innihélt varahluti í bíl Hálfdáns og Hrafnhildar, og áðan kom risastór kassi, inní honum var annar kassi mun minni og þar ofan í voru nýjar Tevur handa BO. Svo eigum við von á tvöföldu skíðasetti hvað af hverju og nýjum síma frá vinnunni minni. Við erum óðan að birgja okkur upp hér af hinum ýmsu nauðsynjavörum.

Annars er þetta stór dagur í dag. Jólamarkaðurinn opnar nú í morgunsárið og stendur til 23. desember. Það ríkir mikil spenna hjá okkur og við förum beint eftir vinnu í dag og tökum markaðinn út.
Einnig höfum við þær fréttir að í gær fórum við á leiguskrifstofuna og skrifuðum undir leigusamning nýju íbúðarinnar. Við fáum hana afhenta 19. desember svo það verður sannkallaður jólaglaðningur að flytja þar inn.
Nú er bara að hella sér í tölvupósta og sinna vinnunni. Kveðja, K
1 comment:
Já þið eruð sannir Íslendingar,mikið dót og farangur og eruð að vasast í einu og öðru.
Björn heppinn með nyju skóna, hann þarf ekki að breyta um stíl.
Kveðja, mamma
Post a Comment