Nov 22, 2007

Í víking

Af mér er það að frétta að ég er búin að vera að vinna á Össurar skrifstofunni í Eindhoven þessa vikuna. Já það er frekar spes að koma inn svona glænýr, en vera samt "gamall" starfsmaður að heiman. Maður er eiginlega "stranger" á slíkum stað. En ég kann ágætlega við Hollendinga, þeir tala bara soldið skrítið. Ég get allavega hrósað þeim fyrir góða þjónustu í verslunum og á veitingastöðum. Við Björn höfum nefnilega verið haldin miklum verslunar-ótta síðan við komum til Þýskalands. Sjáum kannski e-ð fínt í búðargluggum, en þorum ekki inn því við óttumst nærgöngult afgreiðslufólkið. Ólíkt því sem er heima þar sem mér er yfirleitt sýndur mjög lítinn áhugi ef einhvern, en í Þýskalandi vill fólk gjarnan fá að sinna mér/okkur. Allavega... þá stóð ég mig vel áðan, fékk mig inn í verslanir og skellti mér á tvær flíkur. Nokkuð góð.

Svo er það góða íslenska vatnið. Fór áðan í matvörubúð og sá þar alíslenkt Icelandic Glacial water. Er þó nokkuð viss um að þetta er ekki jökulvatn. En þetta vatn var um 30-40% dýrara en allt annað vatn í hillunum og að sjálfsögðu keypti ég mér eina flösku. Sit núna upp á hóteli og finnst ég hafa vín í glasinu mínu!!

Læt þetta duga í bili. Vonandi kemst ég áfallalaust heim á morgun, en lestarstjórar hafa verið í verkfalli í Þýskalandi og því standast ekki hjá þeim allar áætlanir. Vonum að þeir skili mér fyrr en DHL skilaði dótinu okkar. Hilsen, K

3 comments:

Djalla said...

Ég skrifa til ykkar frá Renaissance Hotel í Leipzig. Búin að flytja tvo fyrirlestra og er bara býsna ánægð með það.

Erindið er hins vegar ekki merkilegt, mig langaði bara til að spyrja ykkur hvort þið séuð ekki búin að fá ykkur Kräppelchen að borða? Ég rak augun í að þetta var á boðstólum á Leipzig Hauptbahnhof og fannst þetta bara alveg frábærlega kryppildislegt heiti á matvöru. Hver er ykkar skoðun?

Kveðja, ein að farast úr asnalegheitum á vísindaráðstefnu dauðans

hekla said...

Skil hvað þú átt við. Það er best að vera látinn í friði í búð. Maður hefur bara vanist því á Íslandi. Þær eru líka rosa uppáþrengjandi afgreiðslukonurnar í Shanghai en ég er hætt að taka eftir þeim.

KA said...

Sælar dömur :)

Djalla, við höfum ekki smakkað Kräppelchen og veit ekki hvort við munum gera það. Það eru ýmis heiti hér sem eru ekki alltof spennandi að "borða". Annars gerum við soldið af því að horfa á heimildarþætti um þýskan matvælaiðnað, svo sér maður þetta í kjötborðinu daginn eftir í búðinni... jammí
Svona er lífið hér. K