Mar 11, 2008

Kominn tími til

Jæja, það er víst komið að mér að setja inn fréttir af liðnum og líðandi stundum.

Við höfum ekki setið auðum höndum. Síðastliðinn fimmtudag buðum við labbfélögum okkar til íslenskrar veislu (enda við hæfi "the whistling nationalist"). Við bjuggumst við lágmarks kurteisi gestanna og að þau sætu í það minnsta til miðnættis. Nokkrum ostum, hangikjéts, brennivíns, þremur hvítvínsflöskum og kassa af bjór síðar og löngu fram yfir miðnætti gáfust þau upp og héldu heim.

Föstudagurinn bauð ekki uppá mikla vinnu og fór mest í sjálfsskoðun og hugleiðingar. Þegar rétt var komið yfir hádegi á laugardeginum (sem ég tel hluta af föstudeginum) ákváðum við að rífa okkur upp úr ræfilsdómnum og skella okkur suður fyrir Munchen. Skíðunum var kastað inn í bílinn og ekið af stað.

Munchen er stór borg og því áttum við ekkert erindi þangað. Við skriðum í gegnum hana og ókum svo í gegnum akursvæði. Allt í einu birtust hús í austurrískum stíl og smá þorp fóru að myndast. Þá fóru verslanir með nýjar Audi, Bens og BMW bifreiðar að birtast. Við hlið þeirra voru heilsuhæli og ég efast ekki um að í einhverjum kjöllurunum leyndust andlitsbreytingaskurðstofur. Allt bingóið stóð við vatn sem nefnist Tegernsee. Allt mjög huggulegt og fallegt.

Eftir smá rúnt fundum við hótel við vatnið, leigðum herbergi og snæddum á ítölskum veitingastað sem bjó til ágætis flatbökur. Í háttinn fórum við og settum klukkuna á 7:00.

Á sunnudeginum gerðist nokkuð sem aldrei hefur gerst áður og mun eflaust aldrei gerast aftur (Línalex, nú fer þetta að vera spennandi). Við mættum of snemma í morgunmatinn og þurftum að fara aftur upp á herbergi, einungis til þess að hinkra eftir morgunmatnum!!!!

Eftir morgunmatinn héldum við af stað og stefndum á fjallið Hirchberg, sem er skv. nýjustu upplýsingum af Veraldarvefnum eitt vinsælasta fjallaskíðafjall Þýskalands. Ég hafði náð mér í leiðsögutækjaleiðarpunkta af Veraldarvefnum og leiddu þeir á tindinn í hring. Veðrið var yndislegt og sólin skein sterkt (es war winstill und die Sonne scheint). Við skelltum skíðunum á bakið og gengum af stað (770 m.y.s). Alltaf bjuggumst við við snjó handan næsta horns og uppgötvuðum betur með hverjum metranum, að leiðin hafði verið rudd og því ansi grunnt á snjónum. Rétt áður en við náðum seinasta áfanganum komum við loks í snjó. Skinnum var skellt undir skíðin og arkað af stað.....10 m eða svo og skíðin enduðu á bakinu aftur handan næstu beygju.


Á endanum náðum við á toppinn (1670 m.y.s) í skínandi sól og gleði. Við gátum svo rennt okkur mestan hluta leiðarinnar niður hinn helming hringsins, allt til að hlutafall grass og snævarr var orðið ansi óhagstætt.

Að skíðaferð lokinni skutluðum við Pólverjum á brautarstöðina og vorum svo komin heim til Würzburgar 21:50, eins og Frau Garmin hafði spáð fyrir þremur tímum áður.

Myndir eru að finna á www.pbase.com/bokat

2 comments:

Lína og Alex: said...

He he...mætt of snemma í morgunmatinn ! Jæja hvað gerir maður ekki til að komast út að leika ;) Annars höfum við líklega aldrei náð svo langt að mæta of snemma í morgunmat, jú bíddu, Alex segist hafa þjáðst af "jetlag" eftir flug yfir nokkur tímabelti og minnir að einhverntíman hafi hann mætt áður en kaffið var tilbúið, það var svekkelsi segir hann. Jæja - við þurfum að skella okkur í háttinn núna, erfitt verkefni fyrir höndum á morgun...þurfum á fætur kl sjö ;)
Liebe Grusse,
LoA

hekla said...

Skemmtilegur túr hjá ykkur.
Nú þurfum við að fara að finaliza kína ferðina.
Hekla