Mar 27, 2008

Hér ríkir baðstofustemning

Er að lesa svo skemmtilega bók, Karitas án titils. Þar er eftirfarandi haft eftir danskri móðir Piu eftir að fréttist að dótturina langaði að ferðast um Ísland, árið 1923: "Hún hafði brostið í grát þegar dóttirin skýrði henni frá þeirri ákvörðun sinni að kanna óbyggðirnar í þessu harðneskjulega landi þar sem ránfuglar svifu yfir spúandi eldfjöllum, það væri ókvenlegt og slæmt til afspurnar, enginn vildi konu sem hefði flengst um fjöll og firnindi í karlmannsbrókum, ..." (Kristín Marja Baldursdóttir, 2004).
Eins gott að maður dró ekki andann á þessum tímum!

5 comments:

Anonymous said...

Ég er einmitt líka að lesa þessa bók og hef mmjög gaman að. Ég er nýkomin framhjá þessum kafla ;)

Anonymous said...

og þetta var ég hún Fríða sem skildi eftir skilaðboðin á undan.

KA said...

Hæ Fríða :)

Já þetta er virkilega góð saga, maður hefur samviskubit hvað maður hefur það gott í dag. Skítt með hrun krónunnar, svei mér þá!

Ertu enn á fjöllum?

Anonymous said...

Já já er þar ennþá og verð í einhverja mánuði í viðbót. Þar er allt á kafi í snjó ennþá ekki eins og í bænum þar sem það hverlar alveg að manni að það sé kannski að koma vor. (er sko í helgarfríi)

Anonymous said...

Það er spurning hvort jarðfræðingurinn hefði ekki átt að feta í fótspor forfeðra sinna, hann á það kannski eftir, hver veit!
Taskan vó samt bara 20 kg+ og allt ódrukkið enn, ekki segja neinum.