Það voru mun þægilegri þeir tveir dagar sem við áttum með Línu og Alex. Á öðrum degi fórum við með þeim til Lech sem er mjög fínt skíðasvæði í Arlberg. Þetta voru luxus brekkur og var frábært að fá auðveldan dag á skíðum eftir erfiði dagsins áður.
.jpg)
.jpg)
Eftir að brekkunum var lokað kíktum við á lokalinn, fengum okkur glühwein og litum inn í mest snobbuðu útivistarbúð sem ég hef séð. Þarna voru ríkir asnalegir útlendingar að kaupa dót sem þeir kunna ef til vill lítið að fara með. Ekki annað hægt en að skemmta sér yfir því!.jpg)
.jpg)
Þriðji dagur var af sömu sort, notalegt rennsli í vel unnum brekkunum. Já, það var ekkert skíðað utanbrautar meira í þessari ferð. Við heimsóttum Alex og Línu til Landeck og þau fóru með okkur á lokal skíðasvæðið þar. Það góða við lítt þekkt skíðasvæði er að þar eru fáir og það átti sannarlega við þarna, við nánast áttum brekkurnar fyrir okkur. Flott færi og góð kennsla sem við fengum hjá þeir félögum okkar - Takk fyrir það!
.jpg)
.jpg)
Björn var sérlega glaður með veitingastaðinn í fjallinu, fékk ósvikna bratwurzt (í Lech var bratwurzt skilgreint sem barnamatur... hver gerir slíkt!)
.jpg)
Um kvöldið fórum við út að borða með parinu og fjölskydlu Alex á Tirolskan veitingastað. Frábær endir á mjög góðri ferð!
Á laugardag ákváðum við að bruna beint til Þýskalands. Ferðin var að mestu tíðindalaus fyrir utan þriggja bíla árekstur sem við vorum vitni að á hraðbrautinni... usss það eru ljót slysin sem gerast hér.
Nú erum við í algjörri afslöppun. Nýtt ár gengið í garð - meigi það gefa ykkur góðar stundir!
KA
3 comments:
Gleðilegt nýtt ár !
Takk fyrir skemmtilega daga í brekkunum í Austurríki, það var frábært að geta hitt ykkur yfir jólin :)
Hvernig fór með áramótin hjá ykkur ? Við fórum út að borða með vinafólki okkar hér (etv kannist þið við Guðna Karl Rosinkær - var í jarðeðlisfr. við HÍ) og eftir matinn fórum við einfaldlega heim að sofa því við vorum alveg "kaput" eftir flugið. Stilltum vekjaraklukkuna á miðnætti til að sjá flugelda. Niðurstsaða: Við sáum ekki einn einasta flugeld hér yfir borginni og þetta leit allt saman út eins og hver annar mánudagur ! Fórum bara aftur að hrjóta ;-) Bestu kveðjur LoA
Hæ hó.....takk sömuleiðis. Við elduðum mat hérna heima og ingó kíkti á okkur. Þjóðferjar kunna ekki með flugelda að fara og skutu þeim í allar áttir.
Guðna Karl þekki ég frá Hafnarfirði, björunarsveitinni og Háskólanum. Hvað er hann að gera þarna úti?
BO
Glæsileg skíðaferð, vel af sér vikið. KT
Post a Comment