Dec 30, 2007

Skíðaferð PART UNO

Jæja,

Þá erum við komin heim eftir fyrstu Alpa-ferðina. Við ókum af stað á Jóladag um kl.13:30 frá Würzburg og keyrðum beint í suður. Mest alla leiðina ökum við á sömu hraðbrautinni, eða um 250 km. Fröken Garmin leiðsagði okkur og lét vita hvenær átti að beygja "turn in 245 km" og svo var bara brunað. Ef umferðartafir, slys eða vegavinna, verður á leið okkar þá sér Garmin það fyrir og reiknar fljótlegustu leiðina framhjá. Klukkan var farin að ganga sex þegar við renndum í hlað í Stuben, fjallaþorp með aðeins 30 húsum í 1400 m hæð. Þar hefur allt verið á kafi í snjó síðan 15. nóvember. Þetta var fínasta íbúð sem við höfðum leigt, með okkar eigin eldunaraðstöðu, þurrkherbergi og flott.



Ákveðið var að hafa fyrsta daginn rólegann. Stilla þurfti bindingarnar á skíðunum og prófa að stíga í þær og standa á nýju skíðunum.....en annað kom á daginn.



Fyrsta morguninn röltum við niður að skíðaskrifstofu til að fá upplýsingar um fjallaskíðaleiðir. Starfsmaðurinn þar var svo spenntur að fá okkur í leiðangur sem var að fara af stað innan 15 mínútna. Við útskýrðum vel fyrir honum að við værum byrjendur á fjallaskíðum, en hann sannfærði okkur um að þetta yrði ekkert mál. Við rukum til baka í íbúðina okkar, klæddum okkur vel og smurðum nesti á mettíma. Eftir um 20 mín vorum við mætt á skrifstofuna á ný og hittum hópinn, sem var einn þjóðverji, dönskumælandi. Þetta var allt mjög skondið, og við óttalegir kálfar, að stíga í skíðin okkar í fyrsta sinn, með óstilltar bindingar, engin lyftukort og vissum lítið hvað við vorum að fara út í. Til að gera langa sögu stutta þá var þetta mjög erfið ferð. Við tókum fullt af lyftum, gengum í tæpa tvo tíma á skíðunum og vorum á hæsta punkti í 2.700 m hæð. Þá tók við 13 km rennsli niður í næsta dal mest allt utan brautar. Fyrir óreynt fólk var þetta strembið, en samt svakalega skemmtilegt. Leiðangurstjórinn hann Arnold var svo jákvæður og almennilegur við okkur, kallaði alltaf "Katarina, you follow me" og svo staulaðist ég á eftir honum.

meira síðar.


3 comments:

Anonymous said...

Hæ, gott að þið eruð komin til byggða. Ég bíð spennt efit framhaldinu á skíðaferðinni! kv mamma

Djalla said...

hæhó og gleðilegt aaaaár!!!

Kys og kram!

KA said...

Gleðilegt ár sömuleiðis :D
Við erum greinilega samstillar í netheimum ;)
Kys, K