Jan 21, 2008

Tveimur bindingum fátækari - en öll bein heil

Þá höfum við lokið annarri skíðaferð okkar í Alpana þennan veturinn. Fórum á stað sem heitir St. Gallenkirch og er bara ágætis skíðasvæði (þótt samanburðurinn hafi verið erfiður eftir Lech-ferðina). Gistum í ömmu-legri íbúð hjá Irene og vorum svo heppin að vera einu gestirnir þær þrjár næstur sem við vorum, svo við gátum dreift vel úr dótinu okkar.
Þessi hressi kokkur eldaði dýrindis spínatpasta eftir frábæran fyrsta dag á skíðum.
Södd og sæl eftir rennsli og góðan mat :o)
Tekið úr kláfnum á leið upp, klassískt Alpa-landslag.
Þarna voru fínar brekkur, góður snjór, og fullt af utan brautar leiðum.
Ég varð að setja þessa með, aðallega til að sýna matinn... feitt og gott !! Andri og Berglind voru á svæðinu í heila 10 daga, gott að hafa insiders sem þekkja hvern krók og kima og geta leitt mann í gegnum brekkurnar.
Þessi var soldið fyrir að leika sér. Okkur tókst báðum að brjóta sitt hvora bindinguna.... ég af brussuskap, en þessi á myndinni af fimleikaæfingum.

Ha... hvað má ég fá annan bjór!!
Í setustofunni, það var búið að koma einhverju ömmu-dóti fyrir í hverju horni.

2 comments:

ers said...

Þið eruð greinilega að skemmta ykkur á skíðunum. En það er líka snjór hér hjá Mörlandanum.

Anonymous said...

frábærar myndir hjá ykkur, og gott að vita að það sé gaman hjá ykkur, af myndunum að dæma þá ewr svakalega fallegt þarna og svaka kósy í Ömmu,,legu íbúðinni;o) hlökkum til að sjá meira, kv Hannes, Heiða, og grislingarnir, ps Auðun er farin að skríða, komin 3 tennur og allt í hershöndum, og honum hlakkar mikið til að leika með þyrluna, eða eigum við ekki bara að hafa þetta rétt hehe Hannesi og Byrni hlakkar örugglega til að leika með þyrlurnar hahaha bæbæ gangi ykkur vel fallega par