Nú er mín að kanna heiminn, eða svona hluta hans.
Fór á föstudaginn til London og var í undergroundinu í um tvo tíma þegar ég komst loks til Jóhönnu í Clapham South. Hún var svo góð að sækja mig á lestarstöðina. Elduðum pasta heima um kvöldið og ég lék mér við Lorenzo sem er orðinn 17 mánaða. Á laugardagsmorgun fórum við þrjú saman í skoðunarferð um London, en á bíl, of flókið að vera með barnakerru á sumum stöðum í London. Við fengum okkur hádegisverð á King´s Road sem var ágætt, nema Lorenzo var orðinn soldið pirraður á flakki okkar og vildi helst leika með sykurkarið og henda öllu af borðinu og á gólfið. Ekki vel séð af fínum bretum sem drekka teið sitt voðalega pent með litla putta út í loftið. Svo það var ákveðið að hann færi heima að sofa á meðan ég færi í búðir. Það var typiskt, sogar alla orku úr manni og maður finnur ekkert af viti í öllu kraðakinu. Svo ég fór bara heim líka.
Fórum út að borða á Rossapromadoro í Chelsea og fengum æðislegar pizzur. Þá var Lorenzo litli í stuði, hámaði í sig matinn og ruggaði sér við ítalska tónlist staðarins. Alveg ljóst að í þessum litla manni rennur ítalskt blóð.
Í morgun fórum við í gönguferð um hverfið og komum við á kaffihúsi sem bauð okkur upp á cappucino og með því... mmmm gott gott!
Nú er minns komin til Manchester, eða eiginlega bara á flugvellinum á svona hóteli. Hitti hér þrjá samstarfsmenn og á morgun förum við að gæðastjórnast á Össurarskrifstofunni í Bretlandi. Aðeins önnur stemning en síðustu tveir dagar. Förum svo öll fjögur saman til Hollands á þriðjudagskvöld og stjórnumst þar. Loks kemst ég í mjúkan faðm Bjarnarins á föstudaginn :) Hlakka til!
Hafið það gott - ykkar Katrín
No comments:
Post a Comment