Það er fátt sem fer jafn mikið í taugarnar á mér og lélegt þjónusta, eða engin þjónusta eins og við lentum í í gær. Við sáum þennan huggulega ítalska veitingastað á leið okkar heim úr vinnu, og ákváðum að prófa. Á móti okkur tók hress ítalskur pizzagerðarmaður, og asísk stúlka sem hjá honum vann. Við fengum sæti og það liðu um 10 mínútur áður en við fengum matseðilinn í hendur. Á þeim tíma tókum við eftir að flestir í kringum sátu við auð borð, ýmist að bíða eftir mat eða drykk, og það var svona pirr-stemning í loftinu.
Eftir að við höfðum pantað leið hátt í 1.5 klst þar til við fengum matinn okkar. Stelpugreyjið sem var að vinna þarna stóð sig mjög vel, hún hljóp á milli borða á milli þess sem hún dældi bjór í glös. Kallinn, hann var alltaf að kalla í hana og reka á eftir henni, og var eiginlega bara til vandræða. Hann gerði ein stór mistök, og það var að hann kom sjálfur með pizzunar til okkar, og þá gat ég ekki setið á mér. Ég sagði á minni slöppu þýsku að nú væri maturinn loks kominn! Hann kváði eitthvað, og Björn árétti að við hefðum beðið í um 1.5 klst. Ítalinn brást þannig við að hann baðaði út öllum höndum og sagði að hann væri bara einn að vinna í dag og eitthvað sem við skildum ekki. Við störðum bæði á hann, og þá skipti hann yfir á ítölsku, talaði einhver ósköp, gekk um gólf röflandi eitthvað. Honum hefur sennilega fundist við vera mjög kröfuharðir viðskiptavinir.
Hann er nokkuð líkur Richard Dreyfuss:

En pizzan var mjög góð. Fólk sem sat rétt hjá, og hafði lent í sömu bið brosti góðlega til okkar og ég las úr andlitum þeirra að þau voru sammála en þorðu ekkert að segja. Samt voru það þjóðverjar. Furðulegt að allir voru óánægðir þarna inni en enginn sagði neitt.
Jæja...en mig dreymdi meira svona pizzur og kvartanir í nótt. Haldið að það sé vit í manni!
No comments:
Post a Comment