Dec 14, 2007

Hey hó og jibbíjeyj

Við Katrín skelltum okkur í uppáhalds matvöruverslun okkar, Tegut, í fyrradag. Ég ákvað að kvöldverðurinn skyldi hafa Ítalskt yfirbragð og fyllti því innkaupakerruna af ítalskst ættuðum mat; pastapúðar, hvítlauksbrauð, hráskinka, mosarella ofl. Vegna þessa var ákveðið að kaupa meðalódýrt rauðvín. Þegar við höfðum rennt augum okkar yfir rauðvínshilluna var ákveðið að kaupa 5 Evru vín frá Chile og töldum við okkur hafa sloppið vel. Varð okkur þá litið í næstu hillu og komust þá að því að ódýr rauðvín í þessari verslun voru í kringum 1-2 Evrur. Það er 10 sinnum ódýrara en ódýrust rauðvínin heima. Þar að sjálfsögðu er talað um að við séum á eyju og dýrt að flytja varning..............en bíddu nú við. Þessi ódýru rauðvín voru frá öllum heimsálfunum, Suður-Ameríku Ástralíu ofl.......humm humm

Rétt við borgunarkassan er hilla með tækifæriskortum. Þar vorum við stöðvuð af Kínverksu pari sem var að leita að heppilegum kortum til að gefa kennurum sínum í skilnaðargjöf. Þetta voru að mestu "Geburtstag" kort og útskýrði ég fyrir þeim að ef þetta orð væri einhvers staðar á kortinu, þá væri þetta afmæliskort. Þá rétti karlkyns kínverjinn mér fallegt kort sem hann hafði valið handa kennara sínu og spurði mig álits. Þetta var svona týpískt svarthvítt kort með fallegu tré og sólarljósi sem braust í gegnum laufblöðin............og svo voru þessi fallegu orð á þýsku:

"Maður sem lifir fallegu lífi,
Lifir áfram þótt dauður sé"

.......og ég benti þeim pent á að gefa kennara sínum ekki kort með orðunum "tot" og "gestorben".

Að lokum fund þau ómerkt kort með blómum og gripu þau:

Já........og þá víkur sögunni að uppáhalds kassadömunni sem er eins og gangandi auglýsing frá Dior og þylur upp öll vöruheitin........en um hana verður ritað í næsta kafla.

Yfir og út.

BO

P.s ekkert gengur að finna bíl í þessu landi :(

1 comment:

Tóta said...

Eins gott að þú hefur ekki sama húmor og bróðir þinn. Þá hefði aumingja kínverjinn farið út með samúðarkort eða eitthvað enn verra.