Nov 15, 2007

Fyrri íbúðin


Ég bjó í sama húsinu í rúm 20 ár, og það sama á við um BO og sennilega marga af okkar kynslóð. Nú er ég búin að búa í Þýskalandi í 10 daga og hef búið á tveimur stöðum og mun flytja á annan stað í næsta mánuði. Sambúðin með Weisserman familie endaði þannig að olíuofninn hélt okkur vakandi í tvo, þrjá tíma aðfaranótt þriðjudags og þá sá Björn að þetta gengi ekki lengur... hann yrði að búa betur um hana sína. Svo að á þriðjudaginn kl. 16.15 tókum við þá ákvörðun að flytja í gamla 60 fm íbúð við miðbæinn og vera þar þangað til nýja fína íbúðin verður tilbúin. Við rukum strax af stað í næsta hraðbanka og vorum sest við samningarborðið hjá leiguskrifstofunni kl. 16.35 með 1.000 EUR í vasanum. Því næst var skundað til Weissermann til að segja þeim tíðindin og jafnframt taka það litla dót sem við höfðum haft þar. Þau tóku fréttunum bara vel, enda prýðisfólk og heimilisfaðirinn keyrði okkur í háskólann að ná í restina af búslóð okkar, og svo í nýju leiguíbúðina. Við vorum komin þangað rúmlega 19 eða þremur tímum eftir að við höfðum tekið þessa ákvörðun.
Það besta við þetta framtak okkar er að núna höfum við ísskáp sem inniheldur allt það sem okkur langar í. Og að borða úti hvert kvöld var orðið frekar leiðigjarnt. Hér á myndinni má sjá hvernig nestið var útbúið af mikilli kostgæfni í morgun.

No comments: