Nov 16, 2007

DHL-Express two month door to door service

Langþráðu ullarpeysurnar okkar eru núna fastar í tollinum í Frankfurt. DHL menn ákváðu að láta töskurnar okkar liggja þar uns við færum að sakna þeirra. Við sendum bréf til Íslands, hringdum til Frankfúrtar, svo til Íslands og þá var hringt í okkur frá Íslandi og við hringdum aftur til Frankfúrtar...........enn sendum við tölvupóst til Frankfúrtar og svo til Íslands og aftur til Frankfúrtar.

Núna sit ég og bíð eftir tölvupósti frá Frankfúrt.

3 comments:

Lína og Alex: said...

Hæ hæ :) Gaman að heyra frá ykkur frá "Dojtslandinu" Sérlega ánægjulegt að þið haldið úti smá bloggi - við munum kíkja reglulega í heimsókn. Já það væri gaman ef við gætum hist í Tirol um jólin. Þið eruð velkomin að gista hjá okkur í Landeck ;)

Vonandi fara lopapeysurnar að skila sér í hús...þangað til sýnist amk íslenskt brennivín halda hita á námsmanninum - greinilega allt til alls á skrifstofunni. Verðum í bandi...Lína og Alex vinka frá Vancouver

Lína og Alex: said...

....ps Alex segir ....quote: "stelpur skrifa blogg og karlar vinna - svona er heimurinn í dag" hmmmm !

Djalla said...

Haha, þetta eru meiri aularnir. Sjáumst við svo í Leipzig á föstudaginn? Kys, C