Apr 27, 2008

Farin til Kína!

Jæja... þá erum við að ganga frá íbúðinni okkar í Þýskalandi. Ætlum að halda á vit ævintýranna og förum til Kína á morgun. Eftir tvær vikur komum við aftur við hér í Würzburg að ná í bílinn okkar, keyrum Noregs með viðkomu í Danmörku. Stoppum hjá Elsu frænku í Stavangri og hjá Andreu frænku í Bergen. Frá Bergen siglum við til Seyðisfjarðar, með smá viðkomu í Þórshöfn.


Sjáumst svo bara heima á Íslandinu góða eftir 20. maí :)


Hef ekkert fyndið né skemmtilegt að segja núna... en hér eru menn farnir að þreytast ögn.


Já jú, afmælisbarn dagsins í dag er hún systir mín Halla. Til hamingju með daginn Halla mín!

Knús, K