Mar 5, 2008

Bráðum koma blessuð jólin!

mmmmm... nú ilmar íbúðin öll og allt sem í henni er af hangikjötinu sem ég er að sjóða. Á morgun verður nefnilega haldin veisla á Zellerstrasse 17 rannsóknarstofu í eldfjallafræði til heiðurs að íslenskum sið. Í boði verður kétið frá Kalla, hvannarótarbrennivín, harðfiskur, hraunbitar og lakkrís. Til að ganga ekki alveg frá ungu herramönnunum ætlum við að fara í búð á eftir og kaupa þýskt hvítvín og hveitibjór, svona til að skola öllu gúmmulaðinu niður með!
Allir velkomnir - verði ykkur að góðu!

5 comments:

Djalla said...

takk, ég kem um kvöldmatarleytið! Nennir einhver að sækja mig til Frankfurt? ;)

Lína og Alex: said...

Namm hangiket...kem eftir 5 mín !
Lína og Alex vinka

KA said...

Ekki málið, ég skal renna á eftir ykkur á fína þýska bílnum mínum elskurnar!

Anonymous said...

Var nokkuð farið að slá í kétið frá Kalla - allir sprækir eftir veisluna?

KA said...

Ekkert farið að slá í kétið, það sló bara á móti þeim. Þeim fannst þetta ´sehr rauchen´ eða ´the smokest meat of smoked meat´. Allavega á ég bara tóma brennivínsflösku núna, þannig að eitthvað hefur þeim líkað veigarnar.