Ég er mjög fegin núna, komin heim í náttstað. Þannig var að í kvöld fór ég með Lars sem er sænskur samstarfsaðili minn út að borða niðri í bæ. Við svona römbuðum á réttu veitingastaðagötuna og fundum þokkalegan stað þar. En að finna leiðina heim aftur, þá kárnaði nú gamanið! Við vorum ekki sammála í hvaða átt frá miðbænum íbúðarhverfið okkar var. En þetta var einfalt, þar sem Lars er eldri og lífsreyndari þá fékk hann að ráða. Við fórum til austurs. En þegar við höfðum gengið góðan spotta meðfram ánni þá vildi sá gamli snúa við, en ekki ég, og þá fékk ég að ráða, áfram fórum við leiðina meðfram ánni. Eftir þræðingar inn og út götur römbuðum við loks á rétta húsið. Svona er þetta.... vinna saman og allir vera vinir! En ég get svarið það, öll húsin hérna í Eindhoven eru nákvæmlega eins, hlaðin múrsteinshús með huggulegri heimreið, og já þeir eru mikið fyrir að hafa kerti í glugga svona á kvöldin. Allt nákvæmlega eins. Sennilega IKEA búð hér ekki langt undan.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
3 comments:
Já það er greinilegt að rötunarnámskeið og færni í samvinnu kemur manni oftast á leiðarenda!
svo eins og mamma segir...."alltaf að vera með kort í útlöndum"
P.s mér skylst að þú fóstrir TNF hattinn minn :)
haha... Mér var einmitt hugsað til rötunarnámskeiðsins og ekki síst leitartækni, leit að vísbendingum. En ég passaði mig á að nefna ekkert af þessu við kauða!
Post a Comment