Würzburgarar erum við Katrín orðin. Eftir þrautargöngu og nokkrar ferðir í Rottuhúsið (rathaus) þá fengum við loksins uppáskrifað plagg með stimpli.
Í fyrstu gekk þetta eins og í sögu og við fyrstu skil á eyðublöðum fengum við góðar móttökur og miða í óperuna hjá manninum sem tók á móti okkur. Hann vísaði okkur svo í herbergi 11. Þar tók á móti okkur sérþjálfuð bardagakona til þess að hrekja innflytjendur frá Þýskalandi. Hún fjasaði og fjasaði og skipaði okkur að standa og svo að setjast. Eftir nokkurt þref, þá lét hún okkur fá blátt eyðublað til að fylla út. Mér varð svo um, að Kata þurfti að leiða mig út þar sem ég var kominn að því að líða útaf.
Við hertum okkur upp og komum gögnum hlaðin í næstu heimsókn og ætluðum sko að standa í hárinu á Kellu. Ekkert betra tók við og við gengum út án passa eða frekari niðurstaðna.
Þá tók ég til minna mála og skrifaði til sendiráðsins:
"Til viðtakandaÉg er með 6 mánaða rannsóknarstyrk frá DAAD og stunda rannsóknir mínar viðHákólann í Würzburg. Unnusta mín er með mér og stundar fjarvinnu fyriríslenskt fyrirtæki.Við komum til Þýskalands í nóvember, en vegna íbúðaflandurs, þá fórum viðekki í að skrá okkur til heimilis fyrr en núna. Við fórum eftirleiðbeiningum ykkar á heimasíðunni.Við fylltum út "anmeldung bei der meldebehöre" og allt gekk skikkanlega.Þeir vísuðu okkur á aðra deild (amt fur öffentlich ordnung -auslanderabteilung), en þar er allt í strandi. Konan sem tók á móti okkurvar mjög dónaleg og talaði niður til okkar í sífellu. Að lokum lét húnokkur fylla út annað eyðublað (blátt) og hélt eftir pössunum okkar.Er þetta samkvæmt venju eða á að vera nóg að við skráum okkur skv fyrstaeyðublaði?Unnusta mín er að fara úr landi innan nokkurra daga og þarf því passansinn sem fyrst aftur.Síminn hjá þessari konu er 0931 37-2273 / 37-2767 og nafnið er Hemmerich.Okkur var nokkuð brugðið við þessar móttökur og langaði helst að hætta viðþessa skráningu og fá öll okkar gögn aftur."
og fékk þetta svar:
"Sæll Björn,ég hringdi í Frau Hemmerich og fékk upplýsingar um að hún hafi fyrirmæli um að láta Íslendinga fá sk. "Aufenthaltstitel". Ég sagði henni að við hefðum þær upplýsingar að þar sem Ísland væri aðili að "EWR-Vertrag" (Europäischer Wirtschaftsraum, á ensku EEA) þyrftu Íslendingar ekki Aufenthaltstitel.Ég sendi ykkur vefsíðu "Landesamt für Bürger und Ordnung" í Berlín þar sem þetta kemur skýrt fram:http://www.berlin.de/labo/auslaender/dienstleistungen/eu-info.htmlÉg ráðlegg ykkur að hafa samband við konuna eftir helgi og fá að sækja vegabréfin, þið getið vísað í þessar upplýsingar af netinu. Ég geri þó ráð fyrir að konan verði búin að finna út úr þessu sjálf, það getur bara verið dálítið erfitt að viðurkenna eigin mistök. Það væri ágætt ef þú hringdir í mig, annað hvort í íslenska eða þýska númerið."
Á mánudaginn skrifaði ég svo Kellu og innti svara:
"Dear Mr. Oddsson,dear Mrs. Audunardottir,sorry, but no connection through this telephone number. But, noproblem, I will you inform, that every think is o.k. and I was wright onFriday about our green Form. If you want, you can come on the 15th Jan.2008 in our office and pick up your passport and a paper from us.Openingtime is from 02:00 to 04:00 in the afternoon.greetingE. Hemmerich"
Nú var annar tónn komin í hana, en hún kom með þessa snilldar setningu að hún hefði sagt okkur að fylla út græna eyðublaðið. Aldrei hafði hún gefið okkur tækifæri á að skoða það.
Í gær fórum við svo og fengum allt stimplað bak og fyrir. Að lokum sagði hún:
"Einhver konsúll frá ríkinu ykkar hringdi í mig á föstudaginn og ég þurfti að vinna klukkutíma lengur"
Ég hló innra með mér en sagði auðmjúkur.........."en hvað það var leiðinlegt"
Við stefnum svo á skíði um helgina og hittum þar vini okkar Andra og Berglindi.
over and out............
Jan 16, 2008
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
1 comment:
haha, flott-þið takið bara Deutsche Effektivitet í nefið! Ordnung muss sein, hún verður að átta sig á því, konan!
Post a Comment