Dec 20, 2007

Flutningar

Þá erum við flutt á Zeller götu. Við tókum við íbúðinni á hádegi í gær og drifum í flutningum undir eins. Til þæginda fyrir okkur leigðum við leigubíl sem ók okkur milli íbúða með 6 töskur og þó nokkuð af pokum og pinklum. Nýja íbúðin er hin glæsilegasta, þar hefur verið vandað til verksins og frú Rechner á mikið hrós skilið fyrir gott skipulag og vandað val á innanstokksmunum. Ég læt nokkrar myndir fylgja, en bæti inn meira í albúm við tækifæri.
Á efri hæðinni er stofa, svefnherbergi og vinnuherbergi, all in one - ótrúlegt!
Á neðri hæðinni er eldhús og baðherbergi.
Útsýnið af svölunum.

Það er óhætt að segja að glansinn hafi verið fljótur að fara af þegar við gátum ekki sofnað í gærkveldi vegna láta í gestum barsins sem er á fyrstu hæð (við erum á fjórðu hæð). Þar var spiluð tónlist á hæsta styrk, mikið hlegið og sungið, að ógleymdum drunum úr fótboltaspilinu. Allt þetta magnaðist upp innan í flísalögðum stigaganginum og barst inn til okkar sem erum á efstu hæð. Ég hugsaði með mér, jæja það er miðvikudagskvöld og þeir hljóta að loka búllunni um eitt leytið, og náði að plata sjálfa mig til svefns. En við vöknuðum um fjögur leytið, þá var enn allt í fullu fjöri þar neðra og við frekar svekkt. Í morgun komst BO að því að barinn er kl.17-5 alla daga vikunnar! ... Þar lágu Danir í því. Segi nú bara ekki annað. Sjáum hvað næsta nótt býður upp á.

3 comments:

Lína og Alex: said...

Guten Tag :-)

Til hamingju með íbúðina, það er aldeilis stutt í öllarann fyrir ykkur ! Ætli barinn sé ekki sérdeilis vinsæll þessa dagana þar sem margir eru eflaust að fagna prófum eða reyna að drekka frá sér jólastressið. Vonandi getið þið sofið betur á næstu dögum. Annars hlakkar okkur sérdeilis mikið til að hitta ykkur um jólin. Við vorum að spjalla í dag um að það væri gaman að keyra til ykkar og svo gætum við öll skellt okkur í lúxus brekkurnar í Lech og drukkið gluwein á milli ferða...etv skálið við Paris Hilton.

Lína & Alex vinka

Anonymous said...

Þetta sýnist allt mjög spennandi nema barinn á 1. hæð. Hvað geta margir komið í gistingu? mamma

Djalla said...

Ég hef bara eitt að segja: góða ferð og góða skemmtun á skíðunum! Njótið þess nú bara að vera til. Íbúðin lítur annars mjög vel út, mjög hugguleg bara. Kannski barrotturnar hafi sig hægari svona yfirleitt. Koss, C