Þá er afmælisveislunni á Pleicherwall lokið. Allt fór vel fram, allir fengu sinn kökuskammt og mjólkurglas með. Það fannst þjóðverjunum skrítið, að hafa mjólk með súkkulaðikökunni. En þeir voru snöggir að sækja ískaldan bjórinn um leið og kakan var búin, eins og ekkert væri sjálfsagðara kl. 15 á þriðjudegi.
Einn vísindamannanna hann Toni koma með skemmtilega gestaþraut. Tveimur snúrum með lykkjum á hvorum enda er komið fyrir um úlnlið tveggja þátttakenda, áður en fjórðu og síðustu lykkjunni er krækt á er þeirri snúru þrætt í gegnum hina snúruna. Síðan eiga leikmenn að leysa úr flækjunni án þess þó að losa lykkjurnar af úlnliðunum. Niðurstöður sýndu að því lengur sem þátttakendur höfðu verið í námi, því lengur voru þeir að leysa þrautina. Þannig stóð BOKAT liðið upp úr sem sem sigurvegari þessara sérlega skemmtulegu þrautar. Endilega reynið sjálf.
Herman the German og Simone.
No comments:
Post a Comment