Nov 12, 2007

Kaffitár


Á rannsóknarstofunni hans BO eru tveir doktorsnemar, Ingo sem er þýskur hjólagarpur og Antonella frá Ítalíu. Hún talar svakalega lágt og ég heyri aldrei hvað hún er að segja. Ég er samt búin að lofa að fara með henni í búðir seinna í vikunni til að finna á okkur föt, hvernig sem það gengur upp, ég heyrandi ekki neitt og hún er já... afskaplega hógvær getum við sagt.


Jæja, en þau vildu svo mikið bjóða okkur upp á kaffi áðan, sem Björn þáði, en þetta var svo vont kaffi. Gífurlega sterkt og örlaði af olíuáferð. Ég gretti mig og gjammaði við fyrsta sopa, þannig að Björn hélt ég hefði farið að gráta. Á myndinni er þjóðverjinn stoltur af sínu sterka kaffi.

1 comment:

Tóta said...

Jess - hlakka til að fylgjast með ykkur hér.
Ástarkveðja frá Danmörkunni